Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar
Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar er sameiginlegt með Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhrepp, Grýtubakkahrepp og Hörgársveit. Skipulags- og byggingarfulltrúi fer með byggingareftirlit, hefur eftirlit með byggingu húsa og mannvirkja og gefur út byggingarleyfi að loknum afgeiðslufundi. Hann annast einnig skráningu fasteigna og lóða í fasteignaskrá.